Tölvupóstar

Hvernig líta þessir tölvupóstar út? Eru þeir stuttir og sverir eða langir og mjóir?

Hættulegt veðurútlit

jæja, nú er farið að vara við veðurútliti! Hvernig getur veðurútlit verið varasamt?
mbl.is Varað við veðurútliti á Hellisheiði og Þrengslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðskreiðar tölvur

Ja, nú eru tölvur hraðskreiðar! Ekki vildi ég verða á vegi þessarar!
mbl.is Kínversk ofurtölva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

virðingarleysi

Þetta sér maður hvergi nema á Íslandi að fólk leggi bílum hvar sem er. Agaleysið og  óvirðing fyrir öðrum er í hávegum haft hér á landi og aldrei sá ég neitt þessu líkt í USA þar sem ég bjó lengi! Hvenær ætlum við að taka okkur á og gera eitthvað í þessum málum?
mbl.is Fyrsti skóladagurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarkerfið

Mér hefur alltaf fundist það stórfurðulegt að lögreglan geti sett sig í dómarasæti og svipt menn ökuleyfinu á staðnum. Væri það ekki eðlilegra í lýðræðisríki að þetta færi fyrir dómara?
mbl.is Tekinn á 185 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálpargögn

Hvar eruð þið hernaðarandstæðingar og friðarsinnar núna?

Hvers vegna fettir enginn fingur út í framferði rússa núna þegar þeir koma í veg fyrir sendingar hjálpargagna til Georgíu?


mbl.is Rússar hindra flutning hjálpargagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás í Írak

Hvar eruð þið kanahatarar núna. Var þetta ekki könum að kenna að þessi kona sprengdi sjálfa sig í loft upp? Samkvæmt ykkur vinstrisinnum þá eru það ameríkanar sem eru að murka líkið úr fólki í Írak þannig að það hlýtur að vera eitthvað skrýtið við þessa frétt.
mbl.is 26 létust í sjálfsvígsárás í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórir myrtir í Þýskalandi

Ef þessi frétt væri frá USA væri búið að blogga heilmikið um hvað kanarnir séu brjálaðir og vitlausir. Eru kannski einhverjir vonsviknir yfir því að annað eins gerist utan USA? N.B. þó svo að þetta hafi gerst í þýskalandi þá ætla ég ekki að fordæma alla þjóðverja eins og sumir virðast gera þegar kemur að bandaríkjamönnum.
mbl.is Fjórir skotnir til bana í ísbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

málfræði

Darfúrhérað er eitt orð en ekki tvö!
mbl.is Fánaberi Bandaríkjanna frá Darfúr héraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

landafræði

Hvernig er hægt að sigla yfir Atlantshafið frá New York til Grænlands? Bandaríkin (þar með New York), Grænland og Ísland eru nú öll vestan megin Atlantshafs og þar með hlýtur leið konunnar yfir hafið að vera frá Íslandi til Englands!
mbl.is Gönguamman að komast á leiðarenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband