4.11.2011 | 18:23
Mál- og raunkyn
Hér er enn eitt ruglið með málkyn og raunkyn. Fyrirsögnin er: Björn Hlynur og félagar nakin í gufubaði. Þetta ætti að vera: Björn Hlynur og félagar naktir í gufubaði. Hér skiptir engu þó félagarnir séu af báðum kynjum. Nafnorðið félagi er karlkyns og það ræður ferðinni hér.
Björn Hlynur og félagar nakin í gufubaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.